Ömmu lasagne
- 1Brúnið hakkið á pönnu og kryddið með oreganó, salti og pipar.
- 2Bætið hökkuðu tómötunum út í og látið malla í 20 mínútur.
- 3Raðið plötum og sósu í lögum og bakið við 200 °C í 40 mínútur.
Mató raðar kvöldmatnum á mánuðinn úr réttunum sem heimilið elskar, setur hráefnin á sameiginlegan innkaupalista sem raðast eftir deildum búðarinnar og leiðir þig í gegnum eldamennskuna.
Þrjú skref sem endurtaka sig í hverjum mánuði. Mató sér um hugsunina og skipulagið, þið um bragðið.
Það þarf ekki nýjan rétt á hverjum degi. Læstu dögum sem endurtaka sig, merktu kvöldin þegar þið borðið úti eða klárið afgangana, eða hafðu dag auðan. Mató raðar í kringum það.
Þú í búðinni, makinn heima að kíkja í ísskápinn. Þegar annað ykkar bætir við eða strikar yfir sér hitt það strax.
Byrjaðu á uppskriftum sem fagfólk hefur eldað og metið, bættu svo við réttum fjölskyldunnar og deildu bestu listunum.
Allar opinberar uppskriftir eru metnar og prófaðar af fagkokkum, og ofnæmisvaldar eru merktir svo þú sérð strax hvað hentar.
Settu inn uppskriftir fjölskyldunnar og raðaðu þeim í lista. Mató velur úr þeim alveg eins og hinum.
Gerðu lista opinberan svo aðrir geti tekið hann upp, eða finndu lista frá öðrum heimilum og kokkum Mató.
Við viljum að þú haldir áfram af því Mató virkar, ekki af því að þú gleymdir að segja upp. Þess vegna biðjum við ekki um greiðslukort og rukkum aldrei sjálfkrafa. Þegar prufutímanum lýkur velur þú hvort þú gerist áskrifandi.
Síðan 700 kr. á mánuði fyrir heimilið.
Hættu hvenær sem er, engin binding.
Nei. Þú skráir þig inn með Google eða Apple og notar Mató frítt í 2 mánuði. Engar greiðsluupplýsingar, engin sjálfvirk áskrift.
Ekkert er rukkað. Ef þú vilt halda áfram velur þú áskrift í appinu, í gegnum App Store eða Google Play; annars lokast aðgangurinn þar til þú gerir það.
Áskriftin nær yfir 2 notendur á sama heimili. Báðir sjá sama dagatalið, sömu uppskriftirnar og sama innkaupalistann.
Alltaf. Þú velur réttina sem Mató raðar úr, getur skipt út hvaða degi sem er, læst dögum og stokkað mánuðinn upp aftur.
Ofnæmisvaldar eru merktir á opinberum uppskriftum. Skráðu ofnæmi heimilisins og Mató sleppir réttum sem innihalda þau þegar mánuðinum er raðað. Merkingarnar eru til leiðbeiningar: lestu alltaf innihaldslýsingu á vörunum sjálfum.
Já. Settu inn uppskriftir fjölskyldunnar, raðaðu þeim í lista og deildu listunum með öðrum ef þú vilt.
Í Android og iPhone og í vafra í tölvu. Sami aðgangur alls staðar.
Prófaðu frítt í 2 mánuði. Ekkert kort, engin binding.